Gísli Vilhjálmsson er fæddur 13. maí 1954 í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá M.H. 1974. Þaðan lá leiðin í Tannlæknadeild Háskóla Íslands og lauk hann prófi (Cand.odont.) þaðan 1980. Gísli fór beina leið í framhaldsnám til Bandaríkjanna. Lærði tannréttingar við St. Louis University, Department of Orthodontics. Lauk M.Sc. prófi í tannréttingum þaðan 1982 og í lok námsins hlaut hann Marshalls-viðurkenningu frá St. Louis University of Orthodontic Alumni Association fyrir bestan árangur í tveggja ára framhaldsnámi í tannréttingum.
Gísli fékk tannlæknaleyfi 27. ágúst 1980. Sérfræðiréttindi í tannréttingum 16. júní 1988. Gísli stundar virka endurmenntun og sækir reglulega tannréttingaþing erlendis. Hann hefur ætíð tekið þátt í og uppfyllt endurmenntunarkröfu Tannlæknafélags Íslands “VEIT”. Jafnframt hefur hann haldið nokkur erindi á ársþingum Tannlæknafélagsins um efni tengd tannréttingum.
Gísli er giftur Kristínu Jónsdóttur og eiga þau 3 börn. Kristín sér um bókhald stofunnar og sinnir einnig afleysingum í móttöku.
Veiði og bílar eru aðaláhugamál Gísla. Hann og Kristín veiða mikið saman á sumrin. Veiðibíllinn sem er Bronco árgerð 1979, gengur undir nafninu Skrauti. Hann eyðilagðist algjörlega í bílveltu sumarið 2005. Gísli hefur lokið við að endursmíða Skrauta í frístundum sínum.
Bronco 1979 endursmíðaður af Gísla. Endursmíðin var gerð algjörlega með “original” (NOS(new old stock)) íhlutum og tók um það bil 3000 klukkustundir í tvö ár. Límborðar á hliðum eru endurskinsborðar gerðir eftir forskrift frá upprunalegum borðum (“free wheeling package” frá Ford). Prentsmiðja í Sarasota Florida framleiddi borðana með upprunalegu tækninni sem Ford gerði á sínum tíma (silkiprentun) þar sem hver litur er prentaður hvern ofan á annan en ekki bleksprautuprentun. Undirlagsefnið er gulur dúkur frá 3M sem er notaður almennt í umferðarskilti. Þess vegna er endurskin af borðunum þegar tekin er mynd með flassi eins og sést á annarri myndinni.


